28.01.2012 00:50:43 / Kobbi
Við sjáumst á ÍR-velli kl 11:30 líkt og síðustu vikur.. Je right.
ÞAÐ VERÐUR ÆFING...
ALLIR AÐ MÆTA! Síðan geta menn farið heim eða horft á L----POOL - MAN UTD..
Sjáumst hressir!!!
»
27.01.2012 11:16:26 / Kobbi
Það er mæting í Seljaskóla kl 15:00 á eftir. Það verður smá styrktaræfing og allir að svara smá spurningum. Við ætlum að hjálpa við að setja Þorrablót ÍR upp.
Allir að mæta.!!!
»
24.01.2012 08:01:43 / Kobbi
Við íbúar á Hawai verðum að sætta okkur enn og aftur við nýfallinn snjó. Völlurin hefur ekki við þessu og því er klárt að við getum ekki verið með æfingu.
Enn og aftur þá fellum við æfingu niður á ÍR-velli vegna VETUR KONUNGS.
Fylgist samt með blogginu í dag, því ég ætla að athuga hvort við getum ekki fengið tíman innanhúss í kvöld.
Með kveðju
Dóri.
»
20.01.2012 19:26:35 / Kobbi
Við ætlum að hittast í Breiðholtsbrekkunni fyrir ofan Krónuna. Allir að mæta.
Muna eftir að klæða sig vel og hafa með sér þotu, sleða eða eitthvað annað sniðugt. ATH þið megið taka systkynni og foreldra með. Ætlum bara að eyða smá tíma saman.
Varðandi Keiluna þá höfum við ekki fengið svar frá Keiludeildinni og því getum við ekki staðfest verð. Við ætlum því að fresta því um óákveðinn tíma......
Sjáumst á morgun!
Með kveðju
Halldór Þ. Halldórsson
»
20.01.2012 13:53:37 / Kobbi
Hæ !
Snjórinn er að stríða okkur og völlurinn þakinn af hvítu lagi. Við verðum því að fella niður æfinguna í dag og á morgun. Í staðinn verðum við með æfingu í Seljaskóla kl. 13:30 - 15:00 á sunnudaginn. Það er verið að ákveða hvað skuli gera varðandi morgundaginn, fylgist því með blogginu í kvöld.
Dóri og þjálfarateymið.
»
12.01.2012 14:39:53 / Kobbi
Sjáumst á eftir!
Muna vera mættir c.a. kl 19:10
»
11.01.2012 21:47:35 / Kobbi
Strákar.
Laugardaginn 21. janúar ætlum við að sprella smá saman eftir æfingu þennan dag.
Við stefnum á að fara í Keiluhöllina og spila keilu og fá okkur pizzu á eftir. Hver og einn þarf að greiða ca. 1500 kr.
Takið þennan tíma frá og komumst að því hver hefur æft sig mest að undanförnu 
Fyrir hönd foreldra
Hörður
»
11.01.2012 21:42:22 / Kobbi
Ágætu foreldrar/forráðamenn.
Miðvikudaginn 18. janúar kl. 18.00 ætlum við að halda foreldrafund í ÍR heimilinu. Fundarefnið er fyrirhuguð ferð til Noregs í sumar þannig að það er mikilvægt að allir mæti. Einnig ætlum við að fara yfir hvað við viljum gera í fjáröflun í flokknum.
Endilega takið þennan tíma frá en við stefnum á að fundurinn verði búinn kl. 19.00
Fyrir hönd foreldraráðs
Hörður
»
10.01.2012 13:25:17 / Kobbi
Sælir strákar.
Æfing í dag breytist vegna veðurs. ÍR-völlur er á kafi og það eru líkur á að það verði þannig eitthvað út vikuna. Við munum því fá einn tíma í Seljaskóla í kvöld kl 21:10..
ÞAÐ verður mæting í Seljaskóla í kvöld kl 21:00..
Allir að taka með innanhúss fatnað.
FYLGIST SAMT MEÐ BLOGGINU.... HÚN GÆTI FALLIÐ NIÐUR EF AÐ AÐSTÆÐUR TIL AÐ KOMAST Á ÆFINGU VERÐA LÉLEGAR..
»
09.01.2012 14:04:28 / Kobbi
Mánudagurinn sami tími og venjulega.
Þriðjudagurinn sami tími og venjulega.
Miðvikudagurinn FRÍ.
Fimmtudagurinn æfing kl 19:15 til 20:45 ÍR-velli.Föstudagurinn sami tími og venjulega.
Laugardagur FRÍ.
Sunnudagur FRÍ.
Sjáumst í dag.
»
01.01.2012 21:42:40 / Kobbi
Sælir strákar og gleðilegt nýtt ár...
Á þriðjudag munu æfingar 4. flokks karla hefjast aftur og á sömu tímum og fyrir áramót.
Vonandi hafa allir verið duglegir að halda sér við yfir áramótin þrátt fyrir lélega færð og slæmt veður.
Við sjáumst þar.
»
26.12.2011 02:03:11 / Kobbi
Sælir strákar...
Hér er planið sem þið eigið að fylgja eftir frá og með morgundeginum 26. desember.
4 hlaup..
3 x Seljahringir / eða Breiðholtshringir, ef þið hlaupið Breiðholtshring þá þurfið þið að fara tvo hringi fyrir hvern Seljahring.
1 x 1/2 Seljahring eða 1 Breiðholtshring.
5 x 2 styrktarpakka.
Hver styrktarpakki inniheldur: * ATH það á að gera 2 x sinnum hvern styrktarpakka.
Sjáumst á æfingu 3. janúar 2012....
»
21.12.2011 09:34:06 / Kobbi
Sælir ÍR ingar!
Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir.......Þorrafagnaður ÍR í janúar.
Þetta verður stærðarinnar hátíð og ætlum við að taka höndum saman, ÍR ingar sem og aðrir sem tengjast hverfinu, og hafa gríðarlega gaman. Hvetjum við ykkur að smala saman vinum úr félagin eða brottfluttum og koma og gleðjast saman, eitthvað er um að fólk bjóði í heimahús í hverfinu og rölti sér svo á samkomuna.
Verðinu er haldið í lágmarki en til þess þurfum við mikinn fjölda fólks. Athugið að maturinn verður mjög fjölbreyttur og vel úti látinn og íþróttahús Seljaskóla verður sett í veislubúning þennan dag.....mjög skemmtileg tilbreyting.
Nú er um að gera að kaupa miða, en miðasala er hafin á www.ir.is (kreditkort). Miðar verða svo seldir á skrifstofu ÍR og Noon&Súper Sól í Hólmaseli fljótlega í næstu viku.
Það er um að gera að koma miðanum í jólapakkann, hvað annað :-)
Athugið að það er 18 ára aldurstakmark.

»
18.12.2011 20:27:20 / Kobbi
Hæ Hæ. Erum búnir að fá staðfestan tíma kl 17:00 hjá Boltasnillingnum.
Við ætlum í knattspyrnumælingu á morgun og þangað eiga allir að mæta sem ekki hafa farið í það áður. Mæting verður kl 16:50 í Boltasnillinginn Engihjalla. ATH er fyrir neðan 10-11 í Engihjalla. Hægt að ganga inn undir bakaríinu eða fara inn hjá 10-11 og fara niður stigann.
Kostnaður er 2000 og greiðist hjá starfsmanni Boltasnillingsins. Ath það er hægt að kaupa 2 skipti og þá er það ódýrara. Við munum fara í aðra mælingu einhverntíman í sumar og þá verða allir búnir að bæta sig.
Staðfestið þátttöku hér fyrir neðan..
Sjáumst á morgun!
»
17.12.2011 13:49:34 / Kobbi
Hópur 1 á að mæta í síðastalagi kl 09:30 - leikur hefst kl 10:00 og seinni leikurinn er kl 11:00
Í hóp 1 eru Gutti, Valur, Starri, Ómar A, Daníel P, Sæþór, Ómar F, Halldór Óli, Anatoly, Eyþór, Svenni, Ingi.
Hópur 2 á að mæta í síðastalagi kl 12:30 - leikur hefst kl 13:00 og seinni leikurinn er kl 14:00
Í hóp eru Pálmi, Sveinn B, Viktor S, Þorgeir, Daníel J, Viktor Ingi, Janus, Antoníus, Halli, Georg, Magni, Svenni, Nick, Daníel Máni, Ingi.
Ef það einhver sem er að gleymast, hringdu þá í mig í síma 891-6320 og ég set þig inn í lið.
»
Síður:
1 2 3 ...
49